|
Wednesday, May 29, 2002
this seems to be icelandic? help! i don't understand a word!
Nám og kennsla á Netinu
Wednesday, May 9, 2001
Halló!
Ég er að velta fyrir mér hvort þetta virkar hjá mér. Hef reynt áður, en fann ekki leiðina. Samt lítur þetta ekki út fyrir að vera mjög flókið, og þó....
Það hefur komið fyrir að ég hafi þurft að leiðrétta það sem ég sendi svona frá mér, sem þýðir að þá kemur því miður tvöföld sending.
Það er því eins gott að vanda sig áður en sent er, til að forðast þetta vandamál.
Annars líst mér vel á þetta form; annálaskrif. Reikna með að það megi nýta á ýmsan hátt.
Kveðja, Herdís.
Annálaskrif
Tuesday, May 8, 2001
Sæl öll
Ég er að gera tilraun til að taka þátt í þessum nýjungum. Þetta hefur aðeins vafist fyrir mér en ég sé fyrir mér að þetta geti verið skemmtileg viðbót í kennslu.
Bestu kveðjur, Guðfinna G.
Tuesday, April 17, 2001
Sæl Salvör og þið hin
Ég hef verið að fikra mig áfram í því að skoða þessa annála. Nú eftir mikla vinnu og skemmtilega um páskana þá sendi ég inn þessar línur til að prufa. Mér finnst auðveldara að átta mig á innkomu í Pitas frekar en Blogger. E.t.v. nýtist þetta skólastjóra mínum í fréttaskrifum.
Sigríður Sigurðardóttir.
Vangaveltur
Tuesday, April 3, 2001
Sælt verið fólkið
Nú er verið að prófa nýtt form til að tjá sig á eða með????
Mér datt í hug hvort ekki væri hægt að láta nemendur mína skrifa annála á næstu önn og er því að kanna vettvanginn.
Þetta er kannski ekki svo galin hugmynd eftir allt.
Kolbrún
Monday, April 2, 2001
Þetta er áhugavert og góður vettvangur til að skrá atburði í stofnun t.d. skóla. En til þess að kafna ekki í skrifum þarf að hafa skikk á þessu. Mér dettur í hug að í skólum væru ráðnir annálsritarar sem ættu að skrá einn atburði reglulega hver á sínu sviði.
Jón Reynir Sigurvinsson
Netið í listum og þróun menningar
Sunday, April 1, 2001
Bendi ykkur sem dæmi um vefleiðara sem mér finnst ekki bull það er vefurinn hans Más Örlygssonar http://mar.anomy.net
Á vefnum hans fann ég ýmislegt frólegt og listrænt bæði texta og myndir. Ein mynd fannst mér stórskemmtileg og kannski hún sé dæmigerð fyrir þá sem skrifa vefannálana núna á Íslandi en hér eru sæskrímslin:
http://mar.anomy.net/img/ph/l/cyborgs.jpg
Salvör Gissurardóttir
Tjáningarfrelsi -- skynsamleg orð eða skætingur?
Sunday, April 1, 2001
Ég held að fólk geti bullað í öllum miðlum, sjónvarpi, útvarpi, dagblöðum og vefannálum. Þó einhverjir kjósi að rugla bara þá má ekki dæma miðilinn og segja að hann sé bara fyrir rugl. Ég held að ástæðan fyrir að vefannálar í dag eru svona einkaflibb og dómadagsvitleysa sé vegna þess að þetta er afar þröngur og einsleitur hópur sem hefur uppgötvað þennan miðlunarmáta og gerir tilraun með hann. Flest ungir strákar sýnist mér og áhugamenn um tölvur og tækni. En mér finnst langt í frá allt bull sem er í annálunum. Sumir skrifa bara virkilega viturlegar pælingar. Held helst að það sé lenskan hjá þessum "bloggurum" núna að reyna að ganga framaf fólki og þá ekki síst hver öðrum í orðkynngi og fúkkyrðum.
En mér finnst ekki verst bullið - maður er svo sem vanur því úr öðrum fjölmiðlum. Verst er hve hömlulaus skrifin eru stundum og dómgreindarleysið og lítil eigin ritskoðun sem fylgir sumum annálum - en bið fólk að dæma ekki þennan miðlunarmáta út frá því. Hér verðum við að hafa hugfast að skv. stjórnarskránni á hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar en verður að ábyrgjast þær fyrir dómi og tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Mér virðist auðvelt að leiða rök að því að þannig sé sum tilskrifin blygðunarbrot, klám og ærumeiðingar og refsiverð skv. lögum sem um það gilda. Það er bara spurning hver kærir..
Salvör Gissurardóttir
Saturday, March 31, 2001
Þetta er alveg ný vídd í tölvusamskiptum. Hef kíkt inn á nokkrar síður sem Salvör benti okkur á. Veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þetta. Er þetta svona svæði til að blaðra um ekki neitt - finnst það reyndar eftir að hafa farið inn á síðurnar að þetta sé mest einkaflipp þeirra sem skrifa. Sem tækifæri til að hitta samnemendur og -kennara finnst mér þetta skemmtilegt umhverfi
Varðandi þann sem var að ræða um heimsóknir á sveitabæi þá var ég í heimsókn á Tannstaðabakka hjá honum Skúla með 14 krakka. Við vorum öll drifin í galla og stígvél (með stáltá-hættu þá að þykja hallærisleg) og skoðuðum okkur síðan um og höfðum frábæra leiðsögn. Fengum síðan að hlusta á nýútkomið lag bóndans "Vormyndir" sem er skemmtilegt kántrýlag. Þetta er skemmtilegasta sveitaferð sem ég hef farið í með nemendum.
Emma
Samvinna
Saturday, March 31, 2001
Taka tvö.
Það er þetta með teskeiðarnar. Þetta kemur allt með kalda vatninu bara að láta heilann þiðna fyrir framan svona nýja þraut og athuga hvort maður geti þetta ekki.
Vonandi tekst þetta núna. Það sem ég klikkaði á var að gera refresh á síðu salvarar eða vef - annálasvæði hennar.
Nú er gaman að sjá hvernig viðgerðirnar takast en þær tókust ekki í fyrstu tilraun. Er ekki rétt að það sé hægt að hafa þetta sem lokað svæði? En þetta er líka hægt í Frontpage er það ekki rétt hjá mér? Ég hef ekki skoðað þennan möguleika í Dreamweaver það ætti að vera hægt þar eins og í frontpage!
Kveðja Björg
samvinna
Saturday, March 31, 2001
Nú er verið að prófa að taka þátt í umræðum á vefsvæði eða annálasvæið Salvarar. Vonandi virkar þetta.
Kveðja Björg
Þuríður Jóhannsdóttir
Thursday, March 29, 2001
Nú tókst mér að senda texta sem kom í þríriti og mér tókst líka að eyða tveim þeirra aftur.
Ég held að sniðugt sé að skrifa slóðina á sinni heimasíðu og nafnið sitt í pagename - reitinn því að þá sést hverjir eru að senda innlegg. Sumir hér að neðan hafa ekki munað að skrifa undir - sem náttúrulega gengur ekki krakkar mínir.
Ég hef annars verið að skoða vefleiðangrana sem komnir eru inn á webboard og held að rétt væri að hvetja fleiri til að senda inn drögin sín til að fá viðbrögð.
En þessi annálamöguleiki kemur skemmtilega á óvart.
Fín viðbót sem tól til kennslu held ég.
kveðja
Þuríður
Samvinna
Thursday, March 29, 2001
Sælir félagar í tæknibröltinu.
Ég er að reyna að fatta hvernig þetta virkar. Áðan sendi ég krækju með nafninu mínu og heimasíðu og engu öðru - það var óvart.
Nú ætla ég að athuga hvað gerist áður en lengra er haldið.
Þuríður
Þuríður Jóhannsdóttir
Thursday, March 29, 2001
Wednesday, March 28, 2001
prufa
samvinna
Wednesday, March 28, 2001
Já það eru margir hræddir við gin og klaufaveiki. Nú er búið að vara bændur við því að taka á móti skólakrökkum í hefðbundnar vorferðir. Það er ekki ennþá ljóst hvort það verði sett bann á heimsóknir barnanna, allavega þau börn sem hafa farið til Evrópu fá ekki að fara í heimsóknir á sveitabæi.
LJ
Wednesday, March 28, 2001
Já það eru margir hræddir við gin og klaufaveiki. Nú er búið að vara bændur við því að taka á móti skólakrökkum í hefðbundnar vorferðir. Það er ekki ennþá ljóst hvort það verði sett bann á heimsóknir barnanna, allavega þau börn sem hafa farið til Evrópu fá ekki að fara í heimsóknir á sveitabæi.
LJ
Rússafiskur
Wednesday, March 28, 2001
Hér prófa ég að bæta við annálinn. Það sem mér fannst fréttnæmast í íslensku fréttunum í gær var að Rússar skildu banna innflutning á íslenskum fisk. Allt út af gin- og klaufaveiki. Tja, ég er nú ekki ginkeypt fyrir þeirri kenningu að bráðsmitandi sjúkdómur klaufdýra sé líka í sjónum. En þetta sýnir hvað við eigum mikið undir hugmyndum og áliti í sjávarútvegi, ef öll evrópsk matvæli eru talin eiturefni þá lendum við í því líka.
Prufa
Tuesday, March 27, 2001
Nú er ég að prufa að skrifa annál.Líka búin að breyta innleggi.
LJ
Vibót
Tuesday, March 27, 2001
Hér prófa ég að bæta við í annálinn.
Samvinna - Vefannáll á pitas.com
Tuesday, March 27, 2001
Hér er ég að skrifa fyrsta innleggið í annál sem ég hef sem sýnishorn fyrir nemendur á námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu í framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands vormisserið 2001. Þetta er til að sýna nemendum hvernig við getum notað svona annál, annað hvort einn aðili sem er langalgengast en í þessum annál ætla ég að gefa nemendum upp lykilorðið, það er 361682 svo þeir geti skráð sjálfir inn og við prófað að nota þennan annál saman.
Þessi annáll er á pitas.com og það er auðvelt að búa til annál hér og breyta útlitinu. Sérstaklega er ég hrifin af því að engar auglýsingar virðast koma.
Salvör Gissurardóttir
|